Justin Wu er tískuljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður sem starfar í Paris, New York og London.
Hann fékk til liðs við sig strákana sem sýna vor og sumarlínuna 2012 á tískupöllum í smá glens á milli æfinga. Hér sjást strákarnir, sem eru allir starfandi fyrirsætur, í myndbandi Justin Wu, vel snyrtir, fullir af orku og ekki skemmir að þeir eru ferlega myndarlegir og fatastíllinn fyrir alla sem hafa gaman af tísku.
Myndbandið er hinsvegar sérstaklega fyrir þig sem elskar hressa og sæta stráka… Þeir mæma “A little less conversation” sungið af Elvis Presley.
[vimeo]http://vimeo.com/26787485[/vimeo]
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.