Það eru sumir kappar sem þykja hafa meiri kynþokka til að bera en aðrir. Tímaritið People Magazine hefur í nokkur ár útnefnt þann sem hefur mesta þokka þessarar tegundar og sumir hafa sigrað oftar en einu sinni, jafnvel oftar en tvisvar.
Þetta eru þeir George Clooney, Brad Pitt og Johnny Depp sem við getum flestar verið sammála um að örvi ákveðnar taugar. Sá sem þótti mest sexý á þessu ári er hinn dýrðlegi Channing Tatum og þú getur lesið meira um það hér en oftar en ekki skiptir máli að hafa leikið í stórri kvikmynd sama ár og þú ert kosinn.
Pierce Brosnan var eitt sinn kosinn kynþokkafyllstur og má þakka Bond vörumerkinu fyrir þann titil. Sean Connery hefur einu sinni hlotið nafnbótina og einnig Harrison Ford.
Richard Gere var eitt sinn kosinn kynþokkafyllsti karlmaður ársins og eitt árið voru þau og Cindy Crawford kosin kynþokkafyllsta parið og já, þau deituðu hérna í den.
En kíktu hér á þetta flotta samansafn af föngulegum karlmönnum á öllum aldri, ó svo fagrir og fínir..
___________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig