Tískurisinn Jean Paul Gaultier var að senda frá sér nýjan ilm fyrir strákana en hann hefur þegar sett á markað nokkra vinsælustu ilmi heims.
NÝI ILMURINN heitir Kokorico og er byggður upp á laufi, kakóbaunum og við.
Hann er karlmannlegur, seiðandi og mjög heitur. Þannig að hann er tilvalinn ilmur fyrir vorið og sumarið.
Flaskan er ferlega skemmtilega hönnuð en það er karlmannshöfuð með rauðum stöfum sem minna óneitanlega á heitu löndin. Nafnið Kokorico er franska þýðingin á því sem haninn galar eða eins og við segjum hérna á Íslandi: “gaggalagó”.
Ég mæli eindregið með þessum ferska og töff ilmi fyrir sumarið.
______________________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=G1e-PGNmSeQ[/youtube]
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.