Puma er nýbúin að setja á markað trendy og sportlegan herrailm sem kallast Puma Urban Motion. Þessi er flottur ferskur og tælandi. Sigríður pjattrófa skrifaði einmitt um Urban Motion um daginn, eða stelpu-útgáfuna af honum, og hún var svakalega sátt. Í raun minnir sú lykt svolítið á Ninu frá Ricci, (eplið) en er bara í öðrum umbúðum og beint á annan markhóp.
Herrailmurinn er mildur og woody…. en uppistaðan er greipávöxtur, birkilauf, red thyme og fura og er beint á stráka á aldrinum 20-25.
Glasið frekar töff. Svona svargrátt og fer vel í hendi. Næs.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.