Þar sem að þriðji mánuður ársins er að nálgast miðjuna og sólin hækkar jafnt og þétt á lofti er ekki úr vegi að rífa aðeins upp lúnar og ljósar vetrarsálir og minna á að nú styttist í sumarið!
Fyrir ykkur í Hrútsmerkinu þá byrjar árið skuggalega vel (þið vitið það nú þegar).
Orkan er á fljúgandi siglingu, þið hafið aldrei litið betur út, þið hreinlega getið allt og það er rjóma-ljómi yfir ykkur (ekki undanrennu liturinn).
Kæru Hrútar, tunglið er síbreytilegt og það eru þið líka, hafið samt hugfast að það er enginn stöðugt í sviðsljósinu- við erum ýmist í ljósi eða skugga.
Nú skín sólin extra mikið á ykkur fram í miðjan Apríl en ekki upptjúnast af athyglinni sem þið fáið – munið að leyfa ástvinum ykkar að baða sig með ykkur!
Munum að sviðið er risastórt!
Dóra elskar að föndra við snittugerð en matur hefur alltaf haft mikil áhrif á hennar líf. Svo mikil að Dóra byrjar flesta morgna á að hugsa um hvað eigi að vera gott í kvöldmatinn. Hún býr á Seltjarnarnesi, á tvær æðislegar stelpur og sætasta golfara í heimi (að ólöstuðum okkar). Dóra lærði til lyfjatæknis árið 2001 en áhugamál hennar snúast um allt sem tengist mat, hreyfingu, dansi og útivist.