Í dag er svokallaður Þakkargjörðardagur í Bandaríkjunum og bæði frægir sem ófrægir standa í stórræðum í eldhúsinu.
Staðalbúnaður í eldhúsum stórveldisins þennan dag er að sjálfssögðu kalkúnn og sætar kartöflur og baka í eftirrétt en eins og flestir sem hafa prófað að elda kalkún vita þá er þetta heljar prógramm. Sumum ætti þó að reynast það auðveldara en öðrum en eins og sjá má á þessum myndum eru bæði Martha Stewart og Oprah nokkuð sleipar meðan Lindsay litla Lóhan skellir bara í böku.
Ætlar þú að elda kalkún og sætkartöflur um hátíðarnar? Við mælum með því. Virkilega góður matur!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.