Katy Perry er ein af fáum manneskjum sem þolir að hafa blátt hár en Katy hefur sést mikið uppá síðkastið með blátt hár og henni virðist líka það vel.
Það eru ekki mjög margir sem púlla þetta vel en mér finnst Katy alveg sjúklega flott með blátt hár. Ég hef séð nokkrar stjörnur reyna og það bara er ekki að virka jafn vel hjá þeim og henni. Lady Gaga er reyndar flott með alla háraliti að mínu mati!
Já þetta trend er ekki fyrir alla að prófa, en það er samt gaman að sjá að einhverjir þora. Ég sá stelpu á kaffihúsi um daginn sem var með alveg blátt hár og það fór henni alveg einstaklega vel.
Myndir þú þora að fá þér blátt hár?
[poll id=”8″]
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.