Hinn ástsæli leikari Stephen Fry hefur fundið ástina og ætlar að giftast sínum heittelskaða Elliott Spencer er Fry tilkynnti um málið á Twitter í gær og fór fréttin eins og eldur um sinu.
“Oh. It looks as though a certain cat is out of a certain bag. I’m very very happy of course but had hoped for a private wedding. Fat chance!”
Elliott er nokkuð yngri en Fry, eða heilum 30 árum og þar með tekur Fry Madonnu “á þetta” þó að hún hafi nú ekki gifst neinum af sínum ungu kærustum eftir skilnaðinn við Guy Richie.
Bretar líta á Stephen Fry sem hálfgerðan fjársjóð en hann er mjög ástsæll í heimalandi sínu sem víðar. Hann las allar Harry Potter bækurnar sjö inn á hjóðbækur og gerði margverðlaunaða heimildarmynd um Bipolar sjúkdóminn sem hann er sjálfur haldin.
Nú má sjá hann í kvikmyndahúsum borgarinnar þar sem hann leikur í The Hobbit: The Battle of Five Armies.
Talið er að þeir Elliott og Fry hafi verið saman síðan í fyrra en Elliott er titlaður textasmiður, rithöfundur eða (writer), sem gæti verið margt.
Elliott birti mynd á Twitter síðu sinni í fyrra þar sem hann situr á veitingastað, að virðist, með Emmu Thompson sem er vinkona Stephen Fry til margra ára og öðru fólki.
Til hamingju Stephen Fry og Elliott!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.