Myndlistarkonan Stella Önnudóttir Sigurgeirsdóttir verður með sýningu á Mokka frá 4-22. júní nk. Sýninguna kallar hún Andartaks lotningu en þetta er hennar ellefta einkasýning. Verkin á sýningunni hefur Stella unnið frá sölnuðum blómum og jurtum.
„Þetta eru jurtir sem ég hef rekist á og þær hafa vakið áhuga minn og eftirtekt. Ég hef tekið þær með á vinnustofuna mína og fylgst með því sem á sér stað þegar þær visna á náttúrulegan hátt. Við upphefjum almennt lífverur á hátindi lífsins, blómaskeiði sínu en hér nem ég staðar við það sem gerist eftir að því blómaskeiði hefur verið náð og upphef hið litla, smáa og veikburða, sölnað blóm í gullslegnum viðhafnarbúningi, ” segir Stella en öll verk hennar eru unnin í vatnslit, gull, hvítagull eða silfur á tré á þessu ári og síðasta.
„Ljóðrænan og fegurðin við þetta andartak hrörnunarinnar sem blómið fer í gegnum vekur áhuga minn og mig langar til að fanga það augnablik í verkum mínum. Líkt og manneskjan fer eitt lítið blóm í gegnum æviskeið sem mig langar til að draga fram. Þannig upphef ég óhjákvæmilegt aldursskeið þroska, hrörnunar sem við lítum almennt fram hjá og viljum jafnvel afneita að við eigum sameiginlega. Við upphefjum lífveru á hátindi lífsins, blómaskeiði sínu en hér vil ég nema staðar við það sem gerist eftir að því blómaskeiði hefur verið náð“
Sýningin er sölusýning svo að þau sem hafa áhuga á að eignast verk geta haft samband við Stellu í síma 698 5020 eða með því að senda senda henni tölvupóst á netfangið stellamyndlist hjá gmail, svo má líka heyra í starfsfólki Mokka.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 10.00 til 18.00.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.