Ég eyði alltof miklum tíma í að skoða föt sem ég hef ekki efni á..
Reyndar eignaðist ég Quite cute varalitinn frá Mac um daginn vegna þess að ég á svo yndislega vinkonu sem gaf mér hann!
Hann er furðulegur og skemmtilegur. Minnir mig á japanska teiknimyndapersónu.
Hér eru nokkrir hlutir sem mig langar í…Óskalisti í engri sérstakri röð…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.