Girls eru nýju uppáhalds þættirnir mínir og Jessa er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Elska breska hreiminn hennar, náttúrulegu fegurðina, síða hippa hárið og bóhem stílinn.
…Blómamynstur, víðar buxur og kjólar, dökkir varalitir, fjaðrir, leður, litir , blúndur, hattar. Hún er svo fab! Ef þú ert ekki að fylgjast með Girls mæli ég með að þú byrjir strax! Nokkur átfitt í anda Jessu:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.