Rihanna er ein sú allra heitasta í Hollywood um þessar mundir bæði tónlistar og tískulega séð.
Rihanna hefur líka aldeilis breytt ímynd sinni síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið. Í fyrstu var ímynd hennar saklausa sæta stelpan frá Barbados með fallega síða hárið og stelpulega stílinn. Þegar leið á ferilinn fór hún að verða leið á ímyndinni og fékk sér ‘edgy’ klippingu og fór að klæðast djarfari og töffaralegri fötum og jukust vinsældir hennar til muna við breytinguna.
Rihanna er dugleg við að vera svolítið öðruvísi og er alltaf mjög töff. Stundum er hún algjör rokkari, aðra stundina mjög kvenleg og hina algjör strákur, hún kemur endalaust á óvart og finnst mér gaman að fylgjast með henni tískulega þó ég hlusti ekki mikið á tónlistina hennar.
Leður, feldir, blúnda, gaddar, litir, sólgleraugu, geðveikir skór, mikið skart,dökkir varalitir, gallaefni…… ÆÐI!
Ég fann nokkrar flíkur sem minna mikið á stílinn hennar Rihönnu, stíl sem segir: vertu kjörkuð og klæddu þig eins og þér finnst flott! Þá líður manni alltaf best:)
Setti einnig inn nokkrar myndir af mínum uppáhalds ‘átfittum’ sem hún hefur sést í.
Fötin eru af síðunum:
www.shopnastygal.com
www.topshop.com
www.patriciafield.com
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.