Cara Delevingne er svo sannarlega nýja “it” fyrirsætan. Hún er gjörsamlega allstaðar , enda stórglæsileg stelpa.
Hún er með skemmtilegan stíl og er mikill trendsetter. Stíllinn hennar er afslappaður, rokkaður, kvenlegur og strákalegur á sama tíma. Hún er algjört kamelljón og gerir það vel! Cara er ekki nema 21 árs gömul og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.
Nokkur átfitt í anda Cöru
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.