Í dag hófst hjólareiðakeppnin WOW cyclothon og ætla félagarnir í Workforce að hjóla hringinn í kringum landið til styrktar Bæklunarskurðdeild Landspítalans.
Workforce liðin eru stútfull af eðal mönnum sem setja markið hátt en Workforce A liðið ætlar sér að hjóla landið á undir 40 klst. Það hefur ekki verið gert áður. B liðið ætlar sér hinsvegar að vinna áheitasöfnunina.
Sitthvað hefur verið gert til að ná settu marki en meðal annars hafa þeir rakað hárin af fótleggjunum til að komast aðeins hraðar. Þessi fótleggjahár eiga það til að mynda viðnám meðan farið er á fljúgandi siglingu.
Endilega hjálpið þessum eðal gaurum að ná settu markmiði – vinna sem flest áheit fyrir LHS og heitið á þá með því að fara inn á:
http://www.wowcyclothon.is/keppnin/keppandi?cid=3474
Svo má fylgjast með piltunum á Facebook síðu Workforce: https://www.facebook.com/workforcetimaskraning?fref=ts
SMS Áheit
Upphæð: 1000 kr – Sendið SMS skilaboðin: 1060 – í símanúmerið: 907 1501
Upphæð: 3.000 kr – Sendið SMS skilaboðin: 1060 – í símanúmerið: 907 1503
Upphæð: 5.000 kr – Sendið SMS skilaboðin: 1060 – í símanúmerið: 907 1505
Upphæð: 10.000 kr – Sendið SMS skilaboðin: 1060 – í símanúmerið: 907 1510
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.