Sophie Dahl er ekkert að stressa sig á því að eiga mann sem er höfðinu lægri en hún.
Þessi fallega fyrirsæta, sem fékk upphaflega athygli út að vera fyrirsæta í “yfirstærð” en er nú orðin ósköp venjuleg gekk að eiga hinn smávaxna söngvara Jamie Cullum í síðustu viku.
Brúðkaupið fór leynt fram enda vildi hún enga athygli.
Reyndar höfðu þau látið gefa sig saman fyrir nokkrum vikum en í síðustu viku var haldin athöfn á fallegu, bresku sveitasetri fyrir nánustu vini og vandamenn.
Fyrir utan það að vera fordómalaus fyrirsæta er Sophie jafnframt rithöfundur og hefur þannig fetað í fótspor móður sinnar og afa síns, Roald Dahl, sem er með virtustu rithöfundum okkar tíma.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.