Myndir af Carrie úr Sex and the City við tökur á framhaldsmyndinni hafa ferðast eins og eldur um sinu á vefnum. Á einni myndinni tók ég strax eftir úberflottum sólgleraugum frá Mykita & Bernhard sem hún var með í tökunum.
Gleraugun flottu eru nú til sölu á vef stílista Sex and the City en þú þarft bara að punga út 525 $ til að fá þau. Þetta er eitthvað tæplega 100 þúsund kall. Eða eins og daman segir á vefverslun sinni:
” -It’s a small price to pay for something useful that you can wear absolutley every day!”
eða -þetta er lítið verð fyrir hlut sem þú getur notað nánast á hverjum degi! -það er þá kannski eins gott að setjast ekki á þessi sólgleraugu!
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.