Ekki er langt síðan ég fjallaði um tísku-séníið Patriciu Field en á heimasíðu hennar má nú finna nýja línu af sólgleraugum eftir Jaesyn Burke og þetta eru engin smá sólgleraugu!
Það er varla hægt að kalla þetta sólgleraugu því það er sennilega erfitt að sjá í gegnum gleraugum fyrir demöntum og skrauti en þau eru hreint listaverk! Það er langt síðan ég hef séð jafn fallega línu af sólgleraugum. Sjón er sögu ríkari – flettið í gegnum myndirnar og látið ykkur dreyma…
Gleraugun eru ekki fyrir alla að kaupa – þau kosta frá 320$ uppí 400$ eða um 40-60.000 kr.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.