Þetta naglalakk finnst mér bara sætt.
Sérstaklega held ég að þetta komi vel út með mátulegum lit á hörundinu, fallegu, ljósgylltu hári og gylltum og/eða bleikum skartgripum. Og svo auðvitað góðu sólarpúðri og fallegu glossi í sama stíl.
Þér að segja er ég með létt fetish fyrir þessum “sólar” vörum sem merkin koma alltaf með á vorin. T.d. elska ég Terracotta vörurnar frá Guerlain og svo á ég æðislega sætan og fínan Juicy Tubes gloss frá Lancomé. Hann er með geggjuðu vanillu karamellubragði sem ég elska að finna lyktina af þegar hann er á vörunum. Held að Juicy Tubes línan geri sérstaklega út á háglansandi glossa með mikilli og góðri lykt.
Verst hvað veðrið er eitthvað leiðinlegt í dag. Kemst í sólar & sumarskap við þessar pælingar.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.