Allstaðar er talað um þetta frábæra krem, það var búið að mæla með því svo oft við mig að ég varð auðvitað að prufa.
Daywear BB cream frá Estée Lauder er “allt í öllu” rakakrem/meik/sólarvörn með SPF 35.
BB stendur fyrir Beauty Benefit og það er sannarlega það sem þetta krem gerir, fegrar mann. Áferðin er létt eins og af lituðu dagkremi nema það hylur bæði betur og gefur húðinni raka og vörn.
Þetta er fullkomið dagkrem fyrir sumarið, með SPF vörn 35 og náttúrulegri áferð svo þú virðist ekki vera með meik en ert samt með lítalausa og frísklega húð.
BB kremið er ofnæmisprófað, olíulaust, með mildum og góðum ilmi og í handhægum umbúðum sem tryggja að maður kreisti ekki of mikið í einu og kremið endist því lengur.
Mæli með þessu dagkremi fyrir sumarið, það er komið á topp 5 listann minn!
Hér má sjá myndband frá Pixiwoo systrum um notkun BB cream:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=scMOGEtIkuY[/youtube]Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.