Ein allra vinsælasta húðvaran frá Elizabeth Arden er Ceramide, hágæða serum gullperlur!
Ceramide kemur í fallegum umbúðum en hver perla inniheldur nákvæmlega það magn sem þú þarft fyrir andlit og háls.
Auðvelt er að opna perlurnar en þú þarft einungis að snúa efsta laginu í tvo hringi og þá opnast perlan.
Fyrir mitt mat er þetta ótrúlega hentugt og þægilegt, því þarna fær ég nákvæmlega það magn sem ég þarf án þess að bruðla með kremið (sem kemur alveg ótrúlega oft fyrir þegar ég nota krem með pumpu til dæmis). Að auki nær ekkert súrefni að komast í efnið og skemma það eða draga úr virkni. Svo er þetta fullkomið ef maður skellir sér í sund eða ræktina.
MUNUR EFTIR NOKKRA DAGA
Serumið er mjög virkt og eftir aðeins nokkra daga sérðu mun á húðinni. Það sem serumið gerir er að það vinnur vel í ysta lagi húðarinnar og hjálpar húðfrumunum við að endurnýja sig hraðar.
Við vissan aldur missum við þennan eiginleika húðarinnar og húðin eldist. Hrukkur myndast, rakinn minnkar og teygjaleikinn verður minni. Sama sagan hjá öllum.
Kremið er silkimjúkt og létt og hrein unun að nota það daglega því frá fyrstu notkun finnur maður mun á húðinni.
Ceramide frá Elizabeth Arden hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir sína dásamlegu eiginleika, til dæmis þessi verðlaun:
Marie Claire Top 100: Best Top 100 Sales-Refreshing Anti Treatment, 2012
Elle Beauty it list: Best new Intensive Skincare Treatment, 2012
Beauty Beauty Award: Legend Award, 2011
Cosmopolitian Beauty Oscar: Classic Legend Award, 2012
Húðin verður strax mun þéttari, mýkri, rakastig húðarinnar verður mun jafnara og húðin fær fallegan ljóma. Kremið minnir á olíu en er samt mun þéttara en venjulegar olíur. Það smýgur léttilega inn í húðina og skilur hana eftir silkimjúka.
Helstu kostir Ceramide
- Gefur húðinni aukna mýkt og náttúrulegan ljóma frá fyrsta degi notkunar
- Jafnar húðlit
- Styður við náttúrulegar húðfrumur okkar sem vinna við að halda húð okkar þéttri
- Lagar fínar línur og dregur úr hrukkum
- Dregur úr þurrki og lagar rakastig húðarinnar
- Kemur jafnvægi á húðina og gefur henni góðan frískleika
Nú hef ég notað gullperlurnar í nokkrar vikur og ég verð að segja að ég er ákaflega ánægð!
Þetta er alveg dásamlegur lúxus fyrir húð sem á það til að þorna svo ég tali nú ekki um þessar litlu fínu hrukkur sem skyndilega eru farnar að láta sjá sig hér og þar.
Ég finn mikinn mun á húðinni eftir að ég byrjaði að nota kremið. Húðin er mun mýkri, stinnari og jafnari. Mér finnst skammturinn í hverri perlu vera frekar ríflegur svo ég hef notað eina perlu tvisvar á dag, bæði kvölds og morgna (mikill sparnaður í því sem er ekki verra).
[usr 5.5]Ég get mælt 100% með Ceramide gullperlunum frá Elizabeth Arden – alveg dásamlegur lúxus!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.