Healthy mix serum farðinn frá Bourjois inniheldur vítamín úr ávöxtum eins og goji,lychee og granateplum sem gefa húðinni mikla orku og draga fram heilbrigðan ljóma.
Farðinn er létt þekjandi en hægt er að byggja hann upp í miðlungsþekju.
Hann er búinn til úr gel formúlu og er því mjög léttur á húðinni. Hann hentar vel þeim sem eru með þurra húð, er rakagefandi og veitir húðinni góða vellíðunartilfinningu.
Farðinn ilmar einstaklega vel, það er næstum því hægt að finna lyktina af ávöxtunum sem notaðir eru í gerð hans, þó er hún ekki yfirgnæfandi, heldur létt og góð.
Hann er paraben frír og ætti að henta flestum, einnig þeim sem eru með viðkvæma húð.
Farðinn gefur húðinni fallegan ljóma sem mér finnst mjög fallegt. Þeir sem eru með feita húð geta sett púður yfir, oft er nóg að setja það bara á enni, nef og höku eða þar sem maður glansar mest.
Hann endist vel yfir daginn en verður meira glansandi eftir því sem líður á daginn en það gerist oft þegar maður hefur sama farðann lengi.
4,5 stjörnur af 5
[usr 4.5]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.