Þessi varatúss er ein af mínum uppáhalds snyrtivörum. Öðrumegin er túss sem er liturinn en liturinn smitast yfir á varirnar þannig að það kemur enginn “varalitaáferð”…
…Hinumegin er svo varasalvi sem settur er yfir litinn. Það er hægt að velja um fimmtán liti en liturinn sem ég á heitir VICTORIAN og er bleikur eins og liturinn hér til hliðar. Á myndinni fyrir ofan sést liturinn á vörum.
Þessi snilld er ekki seld á Íslandi, eftir því sem ég best veit, en varatússinn fæst í öllum helstu stórverslunum í Bandaríkjunum og kostar ekki mikið.
Á þessari síðu getur þú skoðað alla litina sem eru í boði.