Fyrir nokkrum árum prófaði ég Penzim-gel fyrst eftir að hafa heyrt svo góða hluti um þetta efni. Þá notaði ég Penzim á andlitið og var virkilega ánægð…
…Svo núna nýlega prófaði ég aðra útgáfu af Penzim. Það er í úðaformi og er ætlað andlitinu sem og líkamanum. Þetta Penzim heitir Rejuvenation Lotion- Advanced Skin & Body formula.
Þessi formúla mun eiga að henta einstaklega vel fyrir þá sem hafa ör, bólur, brunasár, meiðsl og slit. Penzimið á meðal annars að jafna húðlitinn og róa þreytt og aum liðamót.
Sjálf hef ég verið að nota þetta mikið á leggina þar sem ég er bæði með valbrá (rauðir flekkir á húðinni) á legginum og beinhimnubólgu. Ég sé starx mun þegar ég set Penzimið á rauðu flekkina en húðin verður áferðafallegri og roðinn minnkar til muna!
Svo eftir erfiðar æfingar og mikið skokk og hlaup þá nudda ég Penziminu vel á auma sköflungana og finn að það hljálpar til við að draga úr verkjum. En eins og áður sagði þá má nota Penzimið allsstaðar, til dæmis á roða eftir sól og hita eða á skordýrabit.
Ég mæli með þessu undraefni fyrir alla. Penzimið er 100% náttúrulegt og hentar því viðkvæmri húð líka…og börnum að sjálfsögðu.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.