Iconið Madonna er ein af þeim sem er alltaf að takast á við eitthvað nýtt í lífinu en nýjasta afurð hennar er ilmvatnið TRUTH OR DARE.
Nafnið er fengið frá heimildarmynd sem var gerð um drottninguna árið 1990.
Madonnu hafði lengi langað að gefa frá sér ilm og lét drauminn loks verða að veruleika. Hún segir ilminn vera persónulegan en vill að aðrir tengist honum líka. Mjög tímalaus ilmur fyrir konur á aldrinum 25-45. Sérstök áhersla á eldri konurnar þó – samt fíla ég hann mjög vel og ég er bara 22 ára!
Það tók mig smá tíma að venjast lyktinni. Ég var ekkert of hrifin í fyrstu en elska hann núna. Mjög klassískur ilmur, sem ég hefði ekki búist við af Madonnu.
Ilminn byggir hún á ilmvatni sem móðir hennar notaði og þess vegna er ilmurinn mjög persónulegur fyrir Madonnu. Þetta er ekki eitt af þessum ótal stjörnu-ilmvötnum sem stjörnunar komu ekki nálægt en fá miljónir fyrir að auglýsa. Madonna hefur lengi haft mikinn áhuga á ilmvötnum og tók hún fullann þátt í að gera ilmvatnið að sínu.
Ilmurinn er frekar þungur og rómantískur. Get ímyndað mér að svona hafi kvikmyndastjörnur í París 1950 lyktað…. Liljur, karamellur, vanilla, jasmín og allskyns blóm – útkoman er skemmtileg. Flaskan er ótrúlega falleg og stílhrein. Hvít með perlum og gulltappa. Svo er ilmvatnið í ódýrari kantinum.
Hér má sjá lostafulla auglýsingu fyrir ilmvatnið – auðvitað er Madonna í aðalhlutverki!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=KEdKyeGHewc[/youtube]
Hún er alltaf með’etta!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.