Shiseido er hágæða merki sem framleiddi nýlega sérstaka hreinsilínu fyrir feita húð. Línan nefnist Pureness og grunnvörurnar eru í þremur skrefum.
Fyrsta skrefið er að hreinsa andlitið.
Það gerirðu með Deep Cleansing Foam sem er sérhannað til að ná sem dýpst ofan í húðina í daglegum þrifum. Froðan losar um stíflur og fjarlægir farða og olíu sem getur valdið bólum án þess að þurrka húðina upp. Deep Cleansing Foam er létt, mild og kælandi. Notið á raka húð og þrífið af með blautri bómul eða þvottapoka.
Næsta skref er andlitsvatn.
Balancing Softener (Alcohol Free) er strokið yfir andlitið með bómul til þess að koma jafnvægi á húðina, ná ónauðsynlegum olíum af henni og mýkja hana upp. Skilur húðina eftir mjúka og þægilega viðkomu.
Síðasta skrefið (en alls ekki það sísta), er rakakrem.
Matifying Moisturizer (Oil Free) er létt rakakrem sem smýgur auðveldlega inn í húðina, nærir hana og mýkir. Það gefur góðan raka en á meðan sjá litlar púðuragnir í kreminu um að draga til sín olíur og minnka glans. Rakakremið ver náttúrulegan raka húðarinnar svo að ekki þarf að hafa áhyggjur af því að það þurrki hana of mikið upp.
Pureness línan er frábær fyrir feita/olíumikla húð og húð sem fær gjarnan bólur og fílapensla. Skrefin þrjú fást í góðum og drjúgum pakkningum og einnig er hægt að kaupa aukavörur úr línunni eins og hreinsiklútua.
Ég mæli eindregið með þessari línu fyrir alla sem eru með húð í feitari kantinum og þá sérstaklega fólk sem á í baráttu við bólur.
Vel hreinsuð húð er undirstaða þess að hún geti verið falleg og þessi lína hjálpar sannarlega til.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com