Ég er alveg veik fyrir góðum rakspírum – karlmenn verða ósjálfrátt svo kynþokkafullir þegar þeir lykta vel. Eruði ekki sammála?
Nýjasta viðbótin í rakspíra safnið hjá mínum manni er ilmurinn The Game frá Davidoff. Flaskan er hönnuð svona líka skemmtilega í takt við nafnið en hún lítur út eins og spilapeningar í bunka – mjög flott hönnun.
Nokkrar viðartegundir, Gin og Juniper ber sameinast í þessum frábæra ilm og maðurinn minn elskar þennan rakspíra, mér til mikillar ánægju! Ilmurinn helst einstaklega vel á. Eftir deit og dans fram á rauða nótt lyktar hann ennþá yndislega þegar þið farið uppí rúm að kúra.
Samkvæmt auglýsingarherferðinni breytist maðurinn þinn einnig í James Bond við reglubundna notkun. Það er ekkert verra! Ha?
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.