Ég má til með að skrifa um meik sem er í algjöru uppáhaldi hjá mér.
Ég get alveg viðurkennt það að þar sem ég er langt í frá með lýtalausa húð þá fer ekkert lítill tími í að gera húðina fallega. Það sem þarf til er alltaf þrennt; meik, hyljari og púður.
Það er svo mikill léttir og þægilegt að geta bara sett á sig meik á engum tíma og fengið góða þekingu sem helst mött yfir daginn en ég næ því einmitt með Teint Idole Ultra frá Lancome.
Eins er ég viss um að þetta sé tilvalið meik til að hafa í snyrtibuddunni á ferðalagi. Fljótlegt að setja á sig og ég tala nú ekki um ef þú ert stödd í landi þar sem er mikill hiti og eða raki sem veldur því farði á það til að leka.
Meikið fær góða dóma inn á helstu snyrtivörusíðunum, fær 4.5 af 5 inn á beautylish og 4.3 af 5 inn á sephora.
Sjálf gef ég meikinu 5 af 5. Ég get ekki mælt nógu mikið með þessu meiki og þá sérstaklega við þær ykkar sem eruð að glíma við húðvandamál!!
Myndir af þessum glæsilegu Hollywoodstjörnum farðaðar með Teint Idole Ultra tala sínu máli. Takið eftir hvað áferðin er mött en á sama tíma silkikennd.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.