Hágæðamerkið Shiseido hafa framleidd ZEN ilmvötnin frá því árið 1964 og þau eru alltaf jafn góð.
Nýlega kom á markaðinn sumarilmurinn fyrir árið 2013 frá þeim og heitir hann Zen Sun og er ilmurinn algjörlega dásamlega léttur og sumarlegur. Fágað og frísklegt yfirbragð er af ilminum og þér líður einfaldlega eins og þú sért stödd á yndislegri sólarströnd, svona í dagslok þegar húðin er heit eftir daginn.
Ilmurinn er unninn úr blómum og ávöxtum. Mangó, kirsuberjum, musk og amber eru helstu ilmefnin í þessu flotta glasi sem er hannað í litbrigðum sem tengjast ilminum. Algjör fágun og léttleiki.
Flaskan sjálf er falleg og einföld, ferköntuð í bleikum sumartónum. Zen Sun passar sérstaklega vel sem dagilmur við öll tækifæri.
Þar sem Zen Sun er sumarilmurinn frá Shiseido kemur hann í takmörkuðu upplagi. Klárlega einn sá besti sumarilmur sem komið hefur á markaðinn lengi að mínu mati! Algjör unun.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.