Nýji sumarilmurinn frá Cacharel heitir Paradise eau de toilette, NOA
Ilmurinn er bland af blómum og muski. Dásamlega léttur og sumarlegur ilmur sem hentar vel þegar þú ferð í kjól og sandala.
Hann kemur í ferlega krúttlegum umbúðum. Mjög nettum og hentugum, þægilegt að skella því í töskuna og taka með sér hvert sem er. Það úðast ekkert úr flöskunni af því tappinn er með öryggishring og svo er flaskan úr einskonar hörðu plasti svo hún er ekkert að fara að brotna.
Ilmurinn er rómantískur, kynþokkafullur og mjög frísklegur.
Paradise er framleiddur í takmörkuðu upplagi svo passaðu að láta hann ekki framhjá þér fara.
Hrein unun!
Kíktu hér á flotta auglýsingu sem sýnir fleiri ilmi í Paradise – sumar línunni frá Cacharel…
[vimeo]http://vimeo.com/25185837[/vimeo]Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.