Í meira en 20 ár hefur Escada gefið út æðislega sumarilmi og vegna mikillar eftirspurnar hafa þau sett þrjú af vinsælustu ilmvötnunum aftur á markað – í takmarkaðri útgáfu!
Um er að ræða þrjár sætar og sumarlegar tegundir – Sexy Graffiti, Rockin’ Rio og Island Kiss.
Ég fékk að prófa ilminn Island Kiss og síðan ég fékk flöskuna í hendurnar hef ég notað ilmvatnið mikið, enda er lyktin fersk, sumarleg og alls ekki of yfirgnæfandi.
Island Kiss er með ríkum framandi ávaxta- og mangókeim, sætt með örlitlum blómailm. Ilmvatnið kemur í fallegri blárri flösku með flottu skrauti á hálsinum – eins og Escada einu er lagið.
Öll þrjú ilmvötnin hafa fengið frábæra dóma um allan heim og það er um að gera að tryggja sér eina flösku til að eiga í veskinu.
Það verður engin fyrir vonbrigðum með þessi ilmvötn!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com