Studio Secret Primer frá L’Oreal hefur verið hrósað í hástert fyrir ótrúleg gæði og eiginleika síðan hann var settur á markað.
Hugmyndin að primernum var innblásin af förðunarfræðingum um allan heim en hann sléttir yfirborð húðarinnar svo um munar og minnkar til dæmis línur, svitaholur og ör svo fátt eitt sé nefnt.
Studio Secret Primer gefur silkimjúka og matta áferð svo að allur farði fer betur á húðinni. Hann er hægt að nota yfir allt andlitið, á grófari svæði eins og á enni, höku og í kringum nef, jafnvel undir augu og í kringum munn til þess að varalitur haldist sem best.
Hér sérðu hvernig á að nota þennan Primer í kennslumyndbandi frá L’Oreal en hér sýnir Collier Strong, förðunarmeistari L’Oreal hvernig hægt er að fá fullkomna húð með þremur einföldum þrepum.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=98fbe7_D0jo&feature=plcp[/youtube]Eins og sjá má á myndbandinu gerir svona primer mikið fyrir heildarútlitið og kemur sér vel fyrir þær sem vilja förðun sem helst lengi á…
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com