Sumarkremið í ár er klárlega Almond Shaping Delight frá L’Occitane…
…Shaping Delight kremið er létt gelkrem sem ilmar dásamlega og kemur í veglegri glerkrukku.
Það er aðallega ætlað á leggina, rassinn, mjaðmirnar og magann. Kremið stinnir húðina en ný og endurbætt formúlan er meðal annars gerð úr rósahnöppum sem örva fitulosun í líkamanum.
Mælt er með að bera kremið á líkamann kvölds og morgna með hringlaga hreyfingum.
Og fyrir þurra fætur þá er Almond Foot Care fótakremið algjör snilld.
Kremið bráðnar hratt inn í húðina og hefur púðurkennda áferð þannig að maður getur skellt sér í sokka eða sandala strax án þess að finnast fæturnir klístraðir.
Kremið, sem græðir þurra og þreytta fætur, inniheldur meðal annars Shea butter, mintuolíu og möndlumjólk og ilmar eftir því. Yndislegt krem.
Mæli klárlega með þessari tvennu fyrir sumarið!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.