L’Occitane er mjög framarlega í því að skapa náttúrulegar, fallegar og ferskar vörur og nýja línan, Sorbet Verbena, er gott dæmi um það.
Nýji ilmurinn í línunni er ferskleikinn uppmálaður og minnir á ískalt, svalandi sorbet með myntu og Verbena tónum. Fyrir þær sem elska fersk og framandi ilmvötn þá er þetta algjörlega málið.
Sorbet Verbena línan er innblásin af þorpum Provence á Frakklandi, en á sumrin eru búin til sorbet þar með blöndu af sítrus og ferskum kryddjurtum til þess að fríska upp á bæði líkama og sál.
Í henni er svo hægt að fá líkams- og hárúða, sturtugel og fleiri ilmi, þar á meðal einn sem bæði kynin geta notað!
Kíkið á þessa línu hjá L’Occitane í Kringlunni! Svo fersk og fín!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com