Smashbox vörurnar halda áfram að koma með spennandi nýjungar og nú er komin á markað kinnalitur sem er glær, í túpu og úr geli!
Kinnaliturinn virkar þannig að þegar gelið kemur á húðina þá aðlagast það þínum lit og myndar fallegan roða. Gelið er glært þegar þú setur það á fingurgómana en um leið og þú berð það á kinnarnar byrja töfrarnir.
Ég mæli með því að þú byrjir á því að nota lítið af einu því að lítið kemur þér langt með þessum kinnalit. Það er mjög þægilegt að bera hann á sig og liturinn verður mjög náttúrulegur og fölbleikur en hægt er að nota hann með og án farða.
Kinnaliturinn inniheldur Goji berja blöndu, andoxunarefni, c-vítamín og er án litarefna.
Þess má geta að kinnaliturinn hefur unnið til fjölda verðlauna og lesendur Allure völdu hann bestan í flokknum frumlegasta varan!
Snyrtivöruverslunin Sephora valdi hann einnig sem besta kinnalitinn svo það er alveg þess virði fyrir þig að tékka á honum. Frábær vara.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig