Sexy Graffiti er ilmur sem á að minna okkur á heitar sumarnætur New York borgar og þá skemmtun, dans og gleði sem þeim fylgja.
Sexy Graffiti er einn af þremur vinsælustu sumarilmum Escada síðustu 20 ára og er nú endurútgefinn okkur aðdáendum til mikillar gleði.
Sexy Graffiti er sætur ávaxtailmur með jarðaberja- og hindberjailmi, myntu og frískleika greipaldins, kjarna sumarblóma og dýpt musku og vanillu. Að mínu mati er þetta hinn fullkomni sumarilmur, alls ekki yfirgnæfandi heldur þvert á móti léttur, ferskur og sætur.
Ég hef áður lýst yfir gífurlegri aðdáun minni á sumarilmum Escada og er þetta fimmti ilmurinn sem ég eignast en finnst mér hver öðrum betri. Ég er heldur ekki að ýkja þegar ég segi frá því að ég er sífellt spurð að því hvaða góða lykt sé af mér sem hefur leitt til þess að margar vinkonur mínar hafa í framhaldi farið að nota sumarilmi Escada.
Þó ég hafi valið mér Sexy Graffiti þá get ég ekki neitað því að langa líka í bæði Island Kiss og Rockin´Rio en hægt er að fara í sniðugan leik sem segir okkur hvaða sumarilmur hentar okkur best hér!
Munið þið eftir ilminum þegar hann kom fyrst út?
Finnst þessi gamla auglýsing bara nokkuð töff, en verð að segja að glasið og umbúðirnar sem komu út núna höfða betur til mín.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.