Mér hefur alltaf fundist vera hægt að stóla á Nivea þegar kemur að húðvörum enda eru þeir með yfir 100 ára reynslu í þeim málum. Nivea er merki sem allir ættu að kannast við og þekkja…
…Það nýjasta sem ég er að nota frá þeim er sturtu-gel sem heitir Sunny Melon & Oil Shower Gel. Mmmm, og það ilmar svo vel! Þetta sturtugel er snilld fyrir þá sem vilja ekki nota sápu í sturtuna en sápa á það til að þurrka húðina upp og gefa henni stama áferð.
Þetta sturtugel mýkir húðina en gelið inniheldur litlar olíu-perlur sem springa við notkun og breytast í mjúka froðu. Útkoman er silkimjúk húð sem ilmar dásamlega eins og hunang og melónur.
Frábær vara sem hentar allri fjölskyldunni. Svo sakar ekki að Nivea vörurnar eru á góðu verði.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.