Ég hef alltaf verið mjög efnis þegar kemur að kremum sem eiga að vinna á hrukkum og gera mann unglegan, svo kynntist ég þessu töfra kremi með langa nafnið frá Lancōme.
RÉNERGIE MULTI-LIFT REVIVA-PLASMA SERUM.
Í tvær vikur er ég búin að vera afar dugleg að nota þetta serum bæði kvölds og morgna. Ég nota það meira að segja undir farða og það er í einu orði sagt – meiriháttar.
Húðin á mér er með sýnilegan mun frá því ég byrjaði að nota kremið. Sléttari, stinnari, með meiri ljóma og það vottar ekki fyrir þurrki. Ég er með frekar viðkvæma húð og þori því oft ekki að prufa svona nýjungar en í þetta sinn sló ég til og sé ekki eftir því.
Kremið sjálft er öflugt, endurlífgandi þykkni sem var hannað út frá sömu stefnu og aðrar vörur í Renergie línunni.
Ef þú ert að leita þér að góðu serum kremi sem gerir allt þetta sem ég er búin að telja upp þá skellir þú þér á þessa vöru án þess að hika. Þú átt ekki eftir að sjá eftir því! Ég get ekki haft þetta einfaldara.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.