Nýji ilmurinn frá Roberto Cavalli heitir einfaldlega Roberto Cavalli perfume. Djúpur blómailmur með grunn appelsínublóma sem tákna ítalskan kvenleika, nautn og glæsileika.
Það má einnig finna ögn af vanillu, málm, möndlu og rósapipar. Einstaklega vel heppnuð og seiðandi blanda sem þó ekki er of þung þrátt fyrir dýptina. Ilmvatn fyrir konur sem þora að vera nautnafullar og áberandi en eru á sama tíma fágaðar, – eins og þær sem klæðast hönnun Roberto Cavalli.
Glasið er sívala með kórónu og tígrisdýramynstri á hálsi, einnkennandi fyrir Roberto Cavalli.
Ilmur sem stendur fyrir sínu og flytur mann í huganum til sumarkvölds á göngu í Flórens eftir viðburðarríkt kvöld með dans, mat og víni.
Í myndbandinu sjáið þið augnablikið sem þessi ilmur á að fanga með hinni fögru Elisa Sednaoui andliti ilmsins.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=ajhW-51Gbs0[/youtube]
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.