Bandaríska fyrirtækið Clinique hefur löngum verið mjög framarlega í öllu sem viðkemur húðvörum og skipta ‘áskrifendur’ línunnar þúsundum, ef ekki hundruðum þúsunda, um heim allann.
Nýlega kom á markað endurbætt serum frá þeim sem kallast Repairwear Laser Focus. Þetta serum er ofnæmisprófað. 100% ilmefnalaust, ekki bólumyndandi, olíulaust og prófað af húðlæknum eins og aðrar vörur frá Clinique.
Þetta serum minnkar sjáanleg merki öldrunar en það er ætlað bæði fyrir andlit og augnsvæði. Þetta þykir mér mikill kostur því nóg er yfirleitt umstangið við húðumhirðu að vera með ótal flöskur og krukkur til að halda prógramminu gangandi.
Að sögn framleiðenda á árangurinn af reglubundinni notkun vörunnar að jafnast á við laseraðgerð eða um 63% til að vera nákvæmt.
LAGAÐIST EFTIR FERÐALAG
Ég var að koma úr löngu ferðalagi þegar ég byrjaði að nota þetta serum ásamt hreinsiþrennunni klassísku frá Clinique. Húð mín var þurr og þreytt eftir ferðina og þurfti virkilega á einhverju góðu ‘boosti’ að halda.
Ég hreinlega fann hvernig hún byrjaði að nærast og mýkjast um leið og ég setti þetta á mig og núna eftir viku af því að nota þetta samviskusamlega sé ég góðan mun á henni.
Eitt af því sem maður tekur eftir með því sem árin verða fleiri eru þessar svokölluðu ‘litabreytingar’ á húðinni en þær koma með sólböðum og því að húðin þín framleiðir ekki litarefni með sama hætti og áður. Þegar við eldumst fáum við fleiri fæðingarbletti (já ég veit, skrítið), sólarbletti… og leitt að nota þetta orð, fyrr eða síðar koma elliblettir. Svona litabreytingar geta líka orðið á meðgöngu og oft er húðin aldrei eins eftir þær.
Það eru m.a. allir þessir ‘blettir’ og ójöfnur á litarefni í húðinni sem draga úr æskuljómanum sem þessari vörulínu frá Clinique er ætlað að endurreisa.
Acetyl Glucosamine og Clary Sage Extract skrúbba og efla náttúrulegt kollagen húðarinnar til að bæta mýkt og fallegri áferð húðar en þetta eru virkustu efnin í vörunni. Þetta byggir jafnframt upp ljóma húðarinnar svo að á fjórum vikum lofa framleiðendur sýnilegum árangri í minni línum og hrukkum, einnig á augnsvæðinu.
Nú hef ég ekki prófað þetta svo lengi en því er lofað að á tólf vikum náist árangurinn um minni línur og hrukkur 54%.
Blanda af amínósýrum og peptides hjálpa til við uppbyggingu á efsta húðlagi sem verður hvað mest fyrir skemmdum af völdum umhverfisáhrifa. – fyllir línur og hrukkur ásamt því að bæta teygjanleika húðarinnar.
Andoxunarefni, eins og C og E vitamin, hjálpa til við að vernda húðina fyrir sólarskemmdum, ásamt því að blanda af ensímum og vottur af granateplum gera við sjáanlegar skemmdir af völdum UV sólargeisla sem eru til staðar fyrir.
NOTKUN
Berið 3-4 dropa tvisvar daglega á allt andlit og kringum augu eftir viðeigandi þriggja þrepa hreinsikúr frá Clinique. Endið með viðeigandi rakakremi/næturkremi. Fyrir bestan árangur, notið ávallt sólarvörn en flestir farðar innihalda í dag um 8- 15 í spf að lágmarki og um að gera að vera aldrei spör á sólarvörn.
Þessi vara er eitthvað sem ég get óhikað mælt með og fyrir aðdáendur Clinique er þetta frábær jólagjöf. Flestar konur taka góðum kremum fagnandi í gjafapakkann sinn og Repairwear Laser Focus frá Clinique er fyrir allar húðgerðir.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.