Einn af mínum uppáhalds ilmum er By Night frá Christinu Aguilera og var ég því heldur betur spennt þegar nýjasti ilmur hennar kom út!
Red Sin er fjórði og nýjasti ilmurinn frá Christinu Aguileru. Rauður er litur ástar og losta auk þess sem Christina er þekkt fyrir eldrauðan varalit.
Ilmurinn er tælandi og ferskur. Rauð epli og kanill einkenna lyktina (mjög jólalegt!) auk þess alpafjóla, sandalviður og musk sem sameinast í þennan girnilega ilm.
Ég fílaði ilminn strax, hann er ekki yfirþyrmandi þótt hann sé mjög sætur. Svo finnst kæró alveg svakalega góð lykt af mér þegar ég nota þetta ilmvatn. Þetta er svo sannarlega kynþokkafullur ilmur 😉
Flaskan er mjög mikið í anda Christinu, í laginu eins og korselett með fíngerða rauða blúndu skreytt á. Mjög elegant og fínt en í línunni er ilmvatn, body lotion, showegel og svitalyktareyðir.
Alltaf gott að nota sama ilm fyrir allar tegundir svo lyktir fari ekki að blandast saman í einn hrærigraut!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=XMdUJydcYIE[/youtube]
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.