Rauðir varalitir eru alveg “in” þessa stundina en ég smellti mér á Rouge Perfect RD 514 litinn frá Shiseido.
Liturinn er ótrúlega fallega rauður svo ég tali nú ekki um gæðin á varalitnum sem er með góðri næringu fyrir varirnar, mjúkur og léttur. Næringin er alveg nauðsynleg fyrir varirnar til að halda varalitnum fallegum allan daginn.
Liturinn endist mjög vel og er lagið og áferðin á varalitnum þannig að auðvelt er að móta varirnar svo þær njóti sín sem best.
Shiseido er lúxus merki og vörurnar frá þeim eru alveg meiriháttar. Áralöng reynsla Shiseido í umönnun húðarinnar skilar sér svo sannarlega líka í förðunarvörunum þeirra því maður finnur vel hvað liturinn nærir varirnar og fer vel með húð þeirra sem er viðkvæm og þunn.
Rauði liturinn er mjög vinsæll núna og verður í sumar ásamt þeim bleika auðvitað. Persónulega finnst mér algerlega nauðsynlegt að eiga einn góðan rauðan lit til að peppa upp flott sumarútlit og gefa heildarlúkkinu smá klassa fíling.
Mæli eindregið með Rouge Perfect RD 514 úr nýju sumarlínu Shiseido – algjör fullkomnun!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.