Þeir fjölmörgu sem kannast við þreytta og þurra fætur ættu að taka Treatment sokkunum frá IROHA Nature fagnandi!
Ég fékk svoleiðis sokka að gjöf fyrir nokkru síðan og gat auðvitað ekki beðið eftir því að komast úr hælaskónum og skella mér í þá. Árangurinn lét heldur ekki á sér standa- Þeir mýktu upp þurra húð, kældu fæturnar á mjög þægilegan hátt og gáfu ótrúlega góðan raka. Sokkarnir eru einnota og koma í bréfi sem auðvelt er að opna.
Þeir eru mjög einfaldir í notkun en þú þrífur og þerrar fæturnar vel fyrir notkun, skellir þér í sokkana, bíður í 15-20 mínútur og þá geturðu þerrað fæturnar örlítið aftur. Þar sem sokkarnir eru verndaðir með plasti er þér alveg óhætt að labba um meðan á meðferðinni stendur.
Þar sem ég stend í lappirnar allan daginn á misþægilegum skóm þá var þetta kærkomin eign- og ég á mjög líklega eftir að kaupa mér þessa sokka aftur.
Ég mæli hiklaust með þessum fyrir alla sem vilja fyrirhafnarlítið fótadekur.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com