Á síðasta ári kom á markaðinn ný vara í Re-Plasty línunni frá Helenu Rubinstein. Um er að ræða serum, næturkrem og hyljara sem lofa þér að draga verulega úr litabreytingum í húðinni.
Eitt af því sem segir okkur að við séum að eldast eru einmitt þessar litabreytingar. Það er vel þekkt að litarefni húðarinnar breytist eftir að kona hefur gengið með barn, en svo er það líka aldurinn sem fjölgar bæði fæðingarblettum og öðrum litabreytingum á húð. Sólböðin eru sérstaklega varasöm hvað þetta varðar líka. Þegar ‘brúnkan’ rennur af þér verða blettirnir eftir og þeim fjölgar með árunum.
Prodigy Re-Plasty Laserist frá HR lofar þér að laga þessa bletti. Slétta úr húðinni, draga fram ljóma og eyða þessum blettum eins mikið og unnt er. Varan er þróuð í samstarfi við hina virtu fegrunarmiðstöð LaClinic Montereux í Frakklandi en þaðan er innblásturinn fenginn. Efnin í seruminu sameina litarefna mólekúl en innihalda einnig escine og hýalúron sýrurnar góðu og vinna þannig gegn roða, dökkum blettum, ójöfnum og hrukkum.
Þetta er hreint mögnuð vara því árangurinn er samstundis sýnilegur. Húðliturinn verður ljómandi og áferðin sléttari og eftir því sem serumið er lengur notað, því fallegri verður áferð húðarinnar.
Línan inniheldur einnig frábært næturkrem sem er hreinn unaður að bera á sig. Það er silkimjúkt og ilmar vel og árangurinn er í sama takti. Kremið inniheldur hátt hlutfall af proxylane sem lagfærir dýpri merki öldrunar: hrukkur, skemmdir í húð og önnur húðlýti. Húðin fær á sig mjög fallegan blæ en ég verð að segja að ég hef sjaldan séð eins öflugan árangur af húðvörum. Húðin mín er með eindæmum fín þessi misserin.
Allar áhugakonur um húðumhirðu og snyrtivörur verða ekki sviknar af því að prófa þessa vöru og ekki síst áskrifendur Helenu Rubinstein.
Athugið að verðið er í takt við vinnuna á bak við vöruna en sagt er að meðferðin sem hlýst af notkun kremanna jafnist á við einn tíma í lasermeðferð hjá LaClinic Montereux.
Re-Plasty Laserist Dark Spot u.þ.b 12.790.-
Re-Plasty Laserist Serum 40 ml kr u.þ.b 25.930.-
Re-Plasty Age Recovery Night cream 50 ml kr u.þ.b 39.800.-
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.