Pore refining burstinn er farðagrunnur, eða primer sem dregur úr opnum húðholum og ójöfnum á húðinni. Þá er t.d. átt við ör eftir bólur, línur eða annað slíkt.
Notaðu Pore Refining Skin Care burstann áður en þú setur á þig farða en notaðu helst farða sem inniheldur bæði sólarvörn og raka (mikið úrval af þeim).
Áferðin af þessum skemmtilega farðagrunni er létt og frískleg og grunnurinn smýgur vel inn í húðina.
Burstinn kemur í frábærum umbúðum. Þú snýrð takkanum með einu handtaki, pumpar smá á handabakið eða beint á andltið og berð á. Þannig myndast jöfn og góð áferð.
Hentug vara sem fer vel í snyrtibuddunni.
Dregur úr opnum húðholum
Sléttir húðina
Dregur úr gljáa

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.