Nýjasta lína MAC – Reel sexy inniheldur fjóra fabjúlus varaliti. Hvor öðrum fallegri og auðvitað eru þeir í takmörkuðu upplagi! Ég leyfði mér nú samt ekki að kaupa alla heldur lét ég mér duga einn.
PINK POPCORN (Ég elska þetta nafn!) heillaði mig mest. Hann er lavander- bleikur með háglans, virðist mun fjólublárri en hann er og liturinn verður mun bleikari á vörunum. Svolítið sérstakur bleikur litur. Fullkominn sumarlitur – og mjög SEXY!
Það þarf varla að taka fram að varaliturinn er endingargóður og nærir vel – eins og allir hinir. Enda ætti ég ekki 16 MAC varaliti ef svo væri ekki!
Þessi lína hefur heldur betur slegið í gegn. Mac er alltaf með puttann á púlsinum.
Hér má sjá Rihönnu með bleikt poppkorn…
Þetta er Pink Popcorn…
Og hér eru allir litirnir…
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.