Hótel erfinginn Paris Hilton er dugleg að halda sér á kortinu og finnur alltaf nýjar leiðir til þess. Ilvötnin hennar hafa í gegnum tíðina gengið nokkuð vel, enda heufr hún sent frá sér allnokkra!
Paris Hilton HEIRESS ilmurinn angar af ávöxtum eins og appelsínum og ástaraldin og er með ferskjum með keim af jasmín, hunangi, kampavíni og tiare blómi. Hann er því sykursætur, ferskur og tilvalin fyrir sumarið.
Þessi ilmur kemur manni í sólskinsskap sem er kannski ekkert svo gaman þegar það kemur snjór annan hvern dag – en sumarið hlýtur nú að fara koma!
Flaskan er ótrúlega krúttleg, plain með bleiku glímmeri. Svo eru ilmirnir hennar Parisar aldrei mjög dýrir sem skemmir nú ekki.
Þessi er tilvalin í fermingargjafir!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.