Það er ekki oft sem ég hrífst svo mikið af ilmvatni að glasið er hálfnað eftir viku en þetta reyndist tilfellið með sumarilminn frá BOSS ORANGE.
Andlit ilmsins er breska leikkonan Sienna Miller en hún og hennar persóna eru jafnframt innblástur fyrir þennan ljúfa, ferska, sæta, sumarlega og stelpulega ilm sem kom á markað nú fyrir skemmstu.
Ilmurinn er mjög ástríðuvekjandi, sterk blóma og vanillu angan, cremé brule og kremaður sandalviður einkenna þennan ljúfa og kvenlega sumarilm frá BOSS ORANGE.
Flaskan er með sama lagi, mjög skemmtilega hönnuð í fallegum appelsínubleikum lit en ilmurinn var fyrst markaðssettur árið 2009.
Þú getur fengið BOSS ORANGE fyrir konur í 30 og 50 ml eau de parfum í helstu snyrtivöruverslunum landsins og ég hvet þig til að kanna hann.
Þetta er fullkominn ilmur fyrir sumarlegar ljóskur á öllum aldri, með fáguðu og ljúfu yfirbragði um leið og hann er ferskur og spontant.
Mér finnst hann mætti reyndar endast lengur á mér, en það segir kannski bara allt um hvað mér finnst hann góður?
Þetta er ilmur sem gerir sumarið svolítið fallegra!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.