Marc Jacobs á svo sannarlega heiðurinn af fallegustu ilmvatnsflöskum heims! Hver flaska er svo einstök og þær verða enn fallegri þegar þær eru komnar saman. Nú á ég bæði Lola og Oh, Lola! Fullkomnar saman inná baðherbergi.
Oh, Lola! er mjög sætur ilmur fullur af ávöxtum, jarðaberjum, hindberjum, perum og vanillu með léttum blómakeim svo eitthvað sé nefnt. Fullkominn léttur sumar ilmur fyrir pjattrófur á öllum aldri!
Lyktin er mjög klassísk og ekki of sterk svo maður fær alls ekki leið á henni. Frábær fyrir vinnuna og alla daga.
Dakota Fanning er andlit ilmvatnsins sem mér finnst passa vel.
Skemmtileg, saklaus, sæt, falleg að innan sem utan og öðruvísi lýsir bæði Dakota og ilminum Oh, Lola! mjög vel.
Svo er bara að safna hinum flöskunum (Daisy og Dot) til að fullkomna safnið!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.