MAC hefur lengi verið leiðandi í förðunarheiminum og kemur því fáum að óvart að þeir nái reglulega að toppa sjálfa sig með því að koma með frumlegar og trylltar vörur inn á markaðinn.
Nýlega gaf merkið út nýja línu sem nefnist Office Hours og er sérhönnuð fyrir flottu nútímakonuna sem veit hvað hún vill, þeytist um í amstri dagsins- og kýs að förðunin haldist óskert.
Office Hours línan inniheldur augnskugga, kinnaliti og Lipglass glossa.
Litirnir eru fallegir og kvenlegir, allt frá flottum hlutlausum litum upp í rauða og bleika. Allar vörurnar eru Pro Longwear og eru sérhannaðar til þess að haldast á í gegnum daginn- meira að segja kinnalitirnir!
Eftir að hafa prófað einn af augnskuggunum, fölbleikan lit sem heitir Endless Passion langar mig helst að fara að kaupa mér alla línuna eins og hún leggur sig! Ekki nóg með að hann haldist á allan daginn heldur er hann líka silkimjúkur.
Fyrir þær sem elska MAC og Pro Longwear þá er Office Hours eitthvað til þess að kíkja á. MAC er selt bæði í Kringlunni og Debenhams Smáralind.
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com