Það er alltaf jafn gaman að eignast nýtt naglalakk. Helst þarf ég að eiga naglalökk í öllum litum, stærðum og gerðum.
Ég varð því einstaklega hamingjusöm þegar ég sá nýju sumarlínuna frá Gosh. Naglalökkin heita Frosted Sand Look og er áferðin nákvæmlega eins og nafnið gefur til kynna. Svona áferð sem gefur nöglunum einstakt útlit.
Naglalakkið sem ég fékk mér heitir Frosted Rose og er frekar mildur bleik/brúnn tón yfir honum. Alls ekki áberandi en þó þannig að tekið sé eftir honum. Áferðin er eins og litaður sandur eða litlir litaðir steinar. Mött áferð en samt sem áður glitrandi. Hrikalega töff alveg!
Eins og öll naglalökkin frá Gosh þá er þessi nýju í þægilegum umbúðum. Auðvelt er að bera naglalakkið á neglurnar og það þornar mjög hratt.
Naglalökkin fást í Lyfju og Hagkaup og eru á mjög svo hagstæðu verði, ég mæli algjörlega með þessari flottu nýjung frá Gosh, ég ætla allavegna að prófa hina litina líka áður en sumarið er búið!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.